Um samtökin
Samtök náttúrustofa voru stofnuð 16. maí 2002.
Aðilar að samtökunum eru starfandi náttúrustofur á landinu, þ.e. Náttúrustofur Suðvesturlands, Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands vestra, Norðausturlands, Austurlands, Suðausturlands og Suðurlands.

Á myndinni sjást aðilar á stofnfundi Samtaka náttúrustofa, frá vinstri: Sigrún Edda Eðvarðsdóttir formaður stjórnar Náttúrustofu Reykjaness, Guðrún Áslaug Jónsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands. Sveinn Kári Valdimarsson forstöðumaður Náttúrustofu Reykjaness, Róbert A. Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, Þorleifur Eiríksson forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða, Ármann Höskuldsson fráfarandi forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra og Einar Már Sigurðarson meðstjórnandi Náttúrustofu Austurlands.


Starfsfólk náttúrustofa landsins á Náttúrustofuþingi í Skagafirði vorið 2019.
- Stofnuð
- 16. maí 2002
- Kennitala
- 660802-2580
- Netfang
- sns@sns.is
- Póstur
- Berist til formanns hverju sinni
Skjöl samtakanna
Aðildarstofur
Smelltu á stofu til að fara á vef hennar. Fréttir á forsíðu sns.is eru sóttar úr fréttastraumum stofanna.