Fréttir frá náttúrustofunum
Fréttir af vefjum náttúrustofanna eru sóttar sjálfkrafa úr fréttastraumum þeirra. Smelltu á frétt til að lesa hana á vef viðkomandi stofu.
Náttúrustofa Austurlands · 86 fréttir · nýjast efst · síða 2 af 4
-
Líf og fjör á degi íslenskrar náttúru Dagur íslenskrar náttúru var haldinn hátíðlegur á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað sl. þriðjudag en deginum er ætlað að stuðlað að aukinni vitund um náttúru Íslands og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita. Starfsmenn Náttúrustofu …
-
Jóhanna Sigurðardóttir líffræðingur ráðin til Náttúrustofunnar
Jóhanna Sigurðardóttir líffræðingur kom til starfa hjá Náttúrustofunni sl. haust. Hún lauk meistaranámi frá Háskóla Íslands árið 2023 og snéri lokaverkefnið hennar að köfunarhegðun og fæðuatferli hnúfubaka. Jóhanna hefur komið að ýmsum …
-
Kolbrún Sverrisdóttir fuglafræðingur fastráðin hjá Náttúrustofunni Kolbrún Sverrisdóttir fuglafræðingur hefur starfað hjá Náttúrustofunni sem sumarstarfsmaður og í afleysingum frá árinu 2023 samhliða meistaranámi sínu í líffræði við Háskólann í Lundi í Svíþjóð þaðan sem hún útskrifaðist í október sl …
-
Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2024
Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands fyrir árið 2024 er nú aðgengileg hér á vefnum.
-
Fugladagurinn 2025
Árlegur fugladagur Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags Fjarðamanna var haldinn laugardaginn 3.maí 2025. Eins og vanalega var boðið upp á fuglaskoðun á tveimur stöðum, annars vegar við ós Norðfjarðarár kl 11:30 og við Andapollinn á …
-
Sjórekin súla úr Skrúði
Sl. sumar tilkynnti Börkur Marinósson um merkta súlu sem fannst sjórekin í Hellisfirði. Við eftirgrennslan hjá fuglamerkingum Náttúrufræðistofnunar Íslands kom í ljós að súlan var ættuð frá Skrúði og var amk 24 ára þegar hún drapst. Hún …
-
Lúsugur refur úr Skagafirði
Í lok mars bárust Náttúrustofu Austurlands sýni úr ref sem skotinn var í Skagafirði í febrúar 2025. Tilkynnandi var Reimar Ásgeirsson uppstoppari á Egilsstöðum, en hann hafði veitt því athygli að feldur dýrsins virtist nokkuð …
-
Tæknidagur fjölskyldunnar 2025
Í byrjun apríl tók Náttúrustofa Austurlands að vanda þátt í tæknidegi fjölskyldunnar sem Verkmenntaskóli Austurlands stendur fyrir árlega. Dagurinn er hinn skemmtilegast þar sem fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök kynna tækni, vísindi og …
-
Tjaldurinn er mættur
Tjaldurinn (Haematopus ostralegus) er mættur á Austurlandið en til hans sást í Mjóafirði þann 3. mars. Einnig hefur sést til hans á Eskifirði síðustu vikur. Þeir tjaldar sem dvelja hér á landi eru að mestu farfuglar en nokkur þúsund hafa …
-
Dásamleg útivera - skemmtilegt sumarstarf
Við leitum að ábyrgum, jákvæðum og drífandi náttúrufræðingum eða náttúrufræðinemum til að taka þátt í sumarverkefnunum með okkur. M.a. að sinna mælingum á flæði gróðurhúsalofttegunda og aðstoða við rannsóknir á gróðri og fuglum. Viðvera á …
-
Náttúrufræðingur óskast
Við leitum að öflugum náttúrufræðingum til að sinna rannsóknum á fuglum, gróðri sem og öðrum náttúrufarsrannsóknum. Störfin eru fjölbreytt og felast m.a. í mótun vöktunar og rannsókna bæði smærri og stærri verkefna, rannsóknum á vettvangi …
-
Ný vísindagrein um stafafuru Nýlega birtist grein í vísindaritinu NeoBiota þar sem fjallað er um útbreiðslu og áhrif stafafuru (Pinus contorta) í Steinadal. Pawel Wasowicz, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, leiddi rannsóknina og meðhöfundar eru Þóra Ellen …
-
Starfsfólk Náttúrustofu Austurlands sótti námskeið um gervigreind
Dagana 21. og 22. janúar var haldið námskeið um gervigreindartækni í Neskaupstað, undir leiðsögn Sverris Heiðars Davíðssonar frá Javelin. Á námskeiðinu fengu þátttakendur innsýn í hvernig hægt er að nýta gervigreind til að einfalda vinnu …
-
Jólakveðja
-
Náttúrustofuþing Samtaka náttúrustofa SNS 2. október 2024
-
Velskur jaðrakan í Hjaltastaðaþinghá
Það er alltaf spennandi að sjá merkta fugla. Í júní sl. sá starfsmaður Náttúrustofunnar litmerktan jaðrakan (Limosa limosa) við Tjarnarland í Hjaltastaðaþinghá. Í ljós kom að hann hafði verið merktur í Bangor Harbour í Wales þann 28.janúar …
-
Kóngasvarmi á Djúpavogi
Á dögunum barst Náttúrustofunni tilkynning um kóngasvarma (Agrius convolvuli ) sem fannst á Djúpavogi. Kóngasvarminn er gríðarstórt fiðrildi (a.m.k. á íslenskan mælikvarða) sem berst hingað árlega frá Suður-Evrópu, einkum á þessum tíma …
-
Lyngbúi horfinn úr Norðfirði? Myndatexti: Lyngbúi. Latneska tegundaheitið pyramidalis vísar til pýramídalögun plöntunnar vegna krossstæðra blaðanna sem fara síminnkandi upp á við. Mynd: GÓ. Lyngbúi (Ajuga pyramidalis) er sjaldgæf og friðuð planta hér á landi1. Samkvæmt …
-
Gagnaritar á súlur í Skrúð
Um miðjan júlí fóru starfsmenn Náttúrustofunnar, Jóhann Finnur Sigurjónsson og Gildwin Philipot út í Skrúð til að freista þess að koma gagnaritum á súlur. Óðinn Logi Þórisson ferjaði og leiðsagði leiðangursmönnum um Skrúðinn og var þeim …
-
Við bjóðum Veroniku velkomna til starfa Veronika Kavanová (M.Sc.) hóf störf á Náttúrustofu Austurlands í byrjun júlí sl. Hún mun sinna hreindýrarannsóknum en auk þess taka þátt fjölmörgum öðrum fjölbreyttum verkefnum stofunnar. Hún er með meistaragráðu í dýrafræði (vistfræði …
-
Nýr fundarstaður bogkrabba á Íslandi
Náttúrustofunni barst nýverið fyrirspurn um krabba sem fannst í fjöru við Framnes í Berufirði. Einungis fannst skjöldur dýrsins en þó var hægt með aðstoð sérfræðinga frá Náttúrustofu Suðvesturlands að staðfesta að þarna væri um bogkrabba …
-
Búrgæra (Trogoderma angustum) í Neskaupstað
Í vikunni barst okkar skordýr til greiningar. Það reyndist vera svokölluð búrgæra sem er lítil bjalla (um 3,5 mm) af gærubjallnaætt. Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er fjallað um búrgæru og þar segir að hún sé upprunnin frá S-Ameríku …
-
Ungir vísindamenn
Dagana 24.-28. júní 2024 var haldið náttúrufræðinámskeið á Mjóeyri á Eskifirði í tengslum við Gönguvikuna í Fjarðarbyggð. Náttúrustofa Austurlands og Ferðaþjónusta Mjóeyrar hafa haldið utan um námskeiðið undanfarin ár. Að þessu sinni tóku …
-
Merkingaátak sumarsins á skúmum í Húsey á Héraðssandi
Náttúrustofa Austurlands lauk í vikunni merkingaátaki sumarsins á skúmum í Húsey á Héraðssandi. Árangurinn var umfram væntingar, 11 gagnaritar endurheimtust af þeim 19 sem voru settir út í fyrra og 29 fóru út í ár. Ólíkt síðustu tveimur …