Fréttir frá náttúrustofunum
Fréttir af vefjum náttúrustofanna eru sóttar sjálfkrafa úr fréttastraumum þeirra. Smelltu á frétt til að lesa hana á vef viðkomandi stofu.
Náttúrustofa Norðurlands vestra · 20 fréttir · nýjast efst
-
Ný grein um fæðu og fæðusérhæfingu hornsíla í Mývatni
Núna í lok apríl birtist greinin Spatial variation and individual specialization of stickleback diet in relation to trophic morphology eftir Rögnu Guðrúnu Snorradóttur. Greinin byggir á meistaraverkefni Rögnu, sem hún lauk í sjávar- og …
-
Opið hús í Sæluviku
Í tilefni af Sæluviku, lista- og menningarhátíð í Skagafirði verður opið hús hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra miðvikudaginn 15 apríl
-
Sumarstarf hjá NNv
Náttúrustofa Norðurlands vestra óskar eftir að ráða sumarstarfsmann fyrir komandi sumar. Nánari upplýsingar er að finna á meðfylgjandi auglýsingu.
-
Jólakveðja frá Náttúrustofu Norðurlands vestra
Jólamynd NNv var tekin í júlí síðastliðnum í leiðangri Náttúrustofunnar ásamt samstarfsfólki frá Landbúnaðarháskólanum til Esjufjalla. Esjufjöll eru mynduð af fjórum fjallshryggjum og fyrir miðri mynd sést vestasti hlutinn sem nefnist …
-
Fléttutal komið út!
Tékklisti yfir íslenskar fléttur og fléttuháða sveppi er kominn út.
-
Langtímaverkefnið Grólind
Náttúrustofa Norðurlands vestra í samstarfi við Land og Skóg hefur tekið að sér langtímaverkefnið Grólind fyrir landshlutann. Þrír starfsmenn stofunnar fóru fyrr í vikunni að taka út fyrstu reitina.
-
Opið hús – Hvalnesbirnan til sýnis
Í tilefni Sæluvikunnar í Skagafirði þá ætlar starfsfólk hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra að vera með opið hús að Aðalgötu 2 á Sauðárkróki, þriðjudaginn 29. apríl n.k. milli kl. 15 og 18.
-
Fléttur á Íslandi taldar og teljast 836
Starri Heiðmarsson, fléttufræðingur og forstöðumaður náttúrustofunnar, mun halda fyrirlestur á hrafnaþingi Náttúrufræðistofnunar miðvikudaginn 26. febrúar n.k. Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi á vef Náttúrufræðistofnunar
-
Baunatíta á Sauðárkróki
Nú á dögunum barst Náttúrustofunni tilkynning frá starfsfólki Vörumiðlunar á Sauðárkróki um óþekkt skordýr sem kom með vörubretti til þeirra. Við nánari skoðun reyndist um Baunatítu (Nezara viridula) að ræða en hér var rauðbrúnt afbrigði á …
-
Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs óskar Náttúrustofa Norðurlands vestra íbúum landshlutans og landsmönnum öllum.
Skeljaskóf er flétta sem finna má um allt land en sérstaklega algeng er hún um sunnan- og vestanvert landið. Fléttur eru sambýli svepps og ljóstillífandi lífveru sem oftast er grænþörungur þó töluvert algengt sé að blábakteríur, löngum …
-
Nýr starfskraftur hjá NNv
Í byrjun þessa mánaðar var Rakel Þorbjörnsdóttir, náttúru- og umhverfisfræðingur, ráðin að Náttúrustofu Norðurlands vestra. Rakel er með B.Sc. próf frá Landbúnaðarháskóla Íslands sem og diplómu í Fiskeldisfræði frá Háskólanum á Hólum …
-
Náttúrufræðingur/-nemi óskast til úttektar á ásætufléttum Sumarstarf í boði við náttúrustofuna við rannsóknir á ásætufléttum og útbreiðslu þeirra í ræktuðum skógum.
-
Gleðileg jól!
Náttúrustofa Norðurlands vestra óskar vinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
-
Engjaskófir hýsa bakteríur sem sýkja æðplöntur!
Í nýbirtri grein er greint frá rannsóknum á bakteríunni Pseudomonas syringae og útbreiðslu hennar á Íslandi. Umrædd baktería er
-
Nýr starfskraftur
Nýlega var Ragna Guðrún Snorradóttir, ferskvatnslíffræðingur, ráðin að Náttúrustofu Norðurlands vestra. Ragna Guðrún lauk M.Sc. prófi við...
-
Birki finnst í Bræðraskeri Breiðamerkurjökuls
Í vöktunarleiðangri á vegum NNv og LBHÍ fannst birki í Bræðraskeri en vaktaðir voru fastir reitir í Kára-, Bræðra- og Maríuskeri Breiðamerkurjökuls. Fimm nýjar tegundir æðplantna fundust í Maríuskeri og hafa fundist 47 tegundir æðplantna …
-
Náttúrufræðingur óskast til starfa
Náttúrustofa Norðurlands vestra óskar eftir að ráða náttúrufræðing til starfa.
-
Fuglaskoðun við Áshildarholtsvatn
Næstkomandi þriðjudag, 4. júlí, stendur Náttúrustofa Norðurlands vestra í samstarfi við Ferðafélag Skagfirðinga fyrir fuglaskoðun kl 17:15. Mæting er við hesthúsin hjá fuglatjörninni. Leiðsögumaður er Einar Þorleifsson náttúrufræðingur.
-
Vorið er komið og grundirnar gróa.
Undanfarna daga hefur verið hlýtt á Norðurlandi vestra. Farfuglar streyma til landsins. Helsingjar, grágæsir, heiðagæsir og álftir eru áberandi á túnum, vötnum og tjörnum. Lóur eru víða komnar í hópum og sandlóur og hrossagaukar allnokkrir …
-
Náttúrustofan hlýtur styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til refarannsókna
Refaveiðar eru stundaðar á vegum sveitarfélaga á Íslandi með því markmiði að draga úr skaða af völdum refa. Til að meta stöðu og áhrif refa á búsmala og vistkerfið í heild eru rannsóknir á stöðu refa í vistkerfinu nauðsynlegar. Skref í þá …